Þróunarhópur er fyrir þann sem vill þroska sig og fræðast um andleg mál. Ég fæ oft spurninguna, er ég nógu næm/ur til að fara í þróunarhóp? það geta allir lært að auka næmni og virkjað innsæið. Að hafa virkt innsæi og að hlusta á það, hjálpar okkur í hverju því sem við tökum okkur fyrir í lífinu.
Ég legg áherslu á að mynda traust og að allir geti tjáð sig. Vinnan þarf að vera uppbyggileg og jákvæð. Ég fæ stundum að heyra; ég get ekki treyst öðrum..... Traust kemur með því að læra að treysta sjálfum sér og það ætlum við að vinna með.
Við förum í hugleiðslu.
Lærum að vernda okkur, hjúpa og jarðtengja og minnka áreiti
Lærum að láta okkur líða betur/vel
Lærum um orkustöðvarnar
Læra að setja sjálfum okkur og öðrum mörk
Byggjum upp öryggi og bætum samskipti við aðra
Við leikum okkur með spil, bæði spáspil og englaspil og kíkjum í bolla
Lærum hvernig við getum notað orkuseina okkur til ánægju og gagns
Rýnum í drauma og lærum að hlusta á draumana okkar
Við notum bænir
Byrjendahópar eru þrír og eru á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum kl. 18.00-20.00, framhaldshópur á fimmtudögum kl. 20.00-22.00 og hópur fyrir lengra komna (reynt fólk í andlegum málum) er á þriðjudögum kl. 20.00-22.00. hóparnir hittast frá 11. september til 6. desember. Hópastarfið á vorönn byrjar eftir þrettándann.