Markmið framhaldsnámskeiðsins er að fólk geti farið að þjálfa sig skipulega í spádómum. Á hverju námskeiði er tekið fyrir ákveðið málefni og það skoðað vel, svo sem persóna, hæfileikar, vinna og nám.
Inn á námskeiðið kemur fólk sem nemendur æfa sig á, en við leitumst við að fá fólk sem er opið og jákvætt og fellur vel að þema hvers dags. Þátttakendur hitta því mismunandi fólk á misjöfnum aldri, allt eftir því hvað verið er að skoða í hvert skipti, enda eru viðskiptavinir mínir alls ekki einsleitur hópur!
Við kynnum mismunandi spilalagnir og aðstoðum þátttakendur við að finna út hvaða spilalagnir og spil henta hverjum og einum. Við hvetjum fólk til að prófa sig áfram með mismunandi spil og lagnir, þar sem mörgum hentar vel að nota fleiri en ein spil, einnig hafa margir náð mun betri árangri með því að breyta um spilalagnir.
Námskeiðið er fjögur skipti, tveir laugardagar og tvö kvöld.
Í lok laugardaganna fjöllum við um ýmis málefni eins og drauma, steina og rúnir, en einnig geta þátttakendur óskað eftir að fjalla um ákveðin málefni og við skoðum þau í sameiningu.
Við Alma Hrönn verður saman með námskeiðið. Hámarksfjöldi á námskeiðinu er 10 manns, en það verður haldið að Súðarvogi 7. Ég gef frekari upplýsingar í síma 861-2505 og í tölvupósti Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .